Icelandic
Birt: 2016-10-24 18:07:22 CEST
Hagar hf.
Fjárhagsdagatal

Birting hálfsársuppgjörs 2016/17

Hagar hf. birta hálfsársuppgjör sitt, fyrir tímabilið 1. mars 2016 – 31. ágúst 2016, fimmtudaginn 27. október nk.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á skrifstofu Haga, 3. hæð í Smáralind í Kópavogi, föstudaginn 28. október kl. 8:30 en þar mun Finnur Árnason forstjóri Haga kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt stjórnendum félagsins.

Kynningarefni, ásamt upptöku af fundinum, verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu Haga, www.hagar.is.