Icelandic
Birt: 2016-10-20 20:09:35 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

REITIR: Niðurstöður skuldabréfaútboðs 20. október

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 20. október 2016 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244 og REITIR151124, auk skuldabréfa í nýjum óverðtryggðum flokki, REITIR 22, sem óskað verður eftir að skráður verði í kauphöll. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa eftir atvikum.

Alls bárust tilboð í flokkana REITIR151244 og REITIR 22 að nafnvirði 3.090 milljóna króna, en ekki bárust tilboð í REITIR151124. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 950 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,60% í flokknum REITIR151244, og að nafnvirði 300 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 6,03% í flokknum REITIR 22. Áður hafa verið gefin út skuldabréf að nafnvirði 30.005 milljóna króna í flokknum REITIR151244 og verður heildarstærð hans því að nafnvirði 30.955 milljóna króna eftir útgáfuna.

Gjalddagi áskrifta, afhending bréfa og skráning á Aðalmarkað Nasdaq Iceland er fyrirhuguð 27. október næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu
einar@reitir.is eða í síma 669 4416