Icelandic
Birt: 2016-10-13 16:09:22 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Reitir og Kringlan semja við H&M

Reitir, Rekstrarfélag Kringlunnar og dótturfélag H&M hafa í dag undirritað leigusamning um verslunarrými fyrir verslun sem rekin verður undir merkjum H&M í Kringlunni en viðræður hafa staðið yfir sbr. fyrri tilkynningu sem finna má hér. Stefnt er að því að H&M opni verslun sína í Kringlunni fyrir lok árs 2017.

Nánari upplýsingar veitir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, í síma 660 3320.