Icelandic
Birt: 2016-09-26 18:28:05 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun og lok endurkaupaáætlunar.

Í 38. og 39. viku 2016 hafa Reitir fasteignafélag hf. keypt 122.699 eigin hluti fyrir 11.190.148 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð     Eigin hlutir eftir viðskipti
21.9.2016 11:01 3.937 91,2 359.054 17.447.591
26.9.2016 13:54 118.762 91,2 10.831.094 17.566.353
Samtals   122.699   11.190.148  

Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 15. mars 2016, og breytt var sbr. tilkynningu þann 2. september 2016, er nú lokið og hefur áætlun félagsins um kaup á eigin bréfum verið náð.

Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 18.000.000 hlutum og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 1.500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin var í gildi til aðalfundardags 2017 nema öðru hvoru framangreindra marka yrði náð áður. Félagið hefur nú keypt 17.566.353 hluti fyrir samtals 1.500 milljónir kr. og er því framangreindu marki um heildarkaupverð náð. Reitir eiga nú samtals sem nemur 2,56% af heildarhlutafé félagsins.

Endurkaupaáætlunin var framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik, nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.