Icelandic
Birt: 2016-09-16 11:22:42 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf.: Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum EIK 12 01 og EIK 15 1

PwC er eftirlitsaðili skuldabréfaflokkanna EIK 12 01 og EIK 15 1. Eftirlitsaðili hefur m.a. það hlutverk að kanna og staðfesta sjálfstæða útreikninga útgefenda á sérstökum skilyrðum skuldabréfaflokkanna. 

PwC framkvæmdi kannanir á útreikningum sérstakra skilyrða skuldabréfaflokkanna EIK 12 01 og EIK 15 1.

Niðurstaða könnunar PwC er sú að PwC staðfestir að skuldabréfaflokkarnir EIK 12 01 og EIK 15 1 standast öll fjárhagsleg- og tryggingarleg skilyrði skuldabréfaflokkanna EIK 12 01 og EIK 15 1 miðað við dagsetninguna 30.06.2016.

Niðurstöður könnunarinnar má sjá í viðhengi.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 590-2209


EIK 12 01 Stafesting vegna 30.6.2016.pdf
EIK 15 1 Stafesting vegna 30.6.2016.pdf