Icelandic
Birt: 2016-09-12 17:44:37 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 36. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 700.000 eigin hluti fyrir 65.275.000 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð    Eigin hlutir eftir viðskipti
7.9.2016 10:44 350.000 92,5 32.375.000 16.393.654
9.9.2016 14:04 350.000 94,0 32.900.000 16.743.654
Samtals   700.000   65.275.000  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 15. mars 2016, með þeirri breytingu sem tilkynnt var þann 2. september 2016.                   
                   
Reitir hafa nú keypt samtals 16.743.654 hluti í félaginu sem samsvarar 93,02% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 1.424.304.843 krónum sem samsvarar 94,95% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 18.146.874 hluti, eða 2,45% af heildarhlutafé félagsins.                   
                   
Samkvæmt endurkaupaáætluninni, eftir framangreinda breytingu, verða að hámarki keyptir 18.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.