Icelandic
Birt: 2016-09-05 13:07:22 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 35. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 542.126 eigin hluti fyrir 48.562.875 kr. eins og hér segir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
30.8.2016 10:46 192.126 87,9 16.887.875 15.693.654
2.9.2016 11:47 350.000 90,5 31.675.000 16.043.654
Samtals   542.126   48.562.875  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 15. mars 2016, með þeirri breytingu sem tilkynnt var þann 2. september 2016.

Reitir hafa nú keypt samtals 16.043.654 hluti í félaginu sem samsvarar 89,13% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 1.359.029.843 krónum sem samsvarar 90,60% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 17.446.874 hluti, eða 2,36% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni, eftir framangreinda breytingu, verða að hámarki keyptir 18.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.