Icelandic
Birt: 2016-09-01 20:20:55 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 1. september

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 1. september 2016 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244 og REITIR151124. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa eftir atvikum.

Alls bárust tilboð í flokkana að nafnvirði 1.905 milljóna króna. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 890 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,59% í flokknum REITIR151244 en hafna öllum tilboðum í flokknum REITIR151124. Áður hafa verið gefin út skuldabréf að nafnvirði 29.115 milljóna króna í flokknum REITIR151244 og verður heildarstærð hans því að nafnvirði 30.005 milljóna króna eftir útgáfuna. Í flokknum REITIR151124 hafa áður verið gefin út skuldabréf að nafnvirði 2.540 milljóna króna og verður heildarstærð hans óbreytt.

Gjalddagi áskrifta, afhending bréfa og skráning á Aðalmarkað Nasdaq Iceland er fyrirhuguð 8. september næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416