Icelandic
Birt: 2016-08-26 17:35:04 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

REITIR: Útboð á skuldabréfum 1. september nk.

Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 1. september næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum REITIR151244 og REITIR151124 sem báðir eru verðtryggðir með jöfnum greiðslum og veðtryggðir með fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.

Fjárfestingabankasvið Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu. Heildarstærð útboðsins getur verið allt að 10 milljarðar kr. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er í hvorum flokki. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. hefur birt í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins. Viðauki við grunnlýsingu verður birtur á sömu vefsíðu áður en ný skuldabréf í framangreindum flokkum verða tekin til viðskipta.

Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.