Icelandic
Birt: 2016-08-25 15:10:59 CEST
Félagsbústaðir hf.
Reikningsskil

Félagsbústaðir - Árshlutareikningur fyrstu 6 mánuði 2016

 

Félagsbústaðir hf, sem eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, eiga og reka félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Markmið félagsins er að starfa í þágu almannaheilla og skal rekstur þess vera sjálfbær. Félagið á og rekur 1909 almennar leiguíbúðir auk 307 þjónustuíbúða fyrir aldraða ásamt 118 litlum íbúðum í sambýlum fyrir fatlað fólk, eða samtals 2.334 íbúðir í Reykjavík.

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða hf. á tímabilinu námu 1.624 millj. kr., sem er 5,3% aukning tekna frá sama tímabilinu 2015 aðallega vegna verðlagshækkunar leigu og stækkunar eignasafnsins.

Rekstrargjöld námu samtals 853 millj. kr. og hækkuðu miðað við sama tímabilinu 2015 um 4,6%. Af einstökum rekstrarþáttum hækkaði rekstrarkostnaður fasteigna um 11,6% og launakostnaður um 18,6%. Framlag til afskrifta leiguskulda lækkaði úr 22 millj. kr. í 16 millj. kr., eða um 27,5%.

Rekstrarhagnaður Félagsbústaða hf. fyrir vaxtagjöld, verðbætur lána og matsbreytingu fjárfestingaeigna jókst um 6,0% miðað við sama tímabil 2015, úr 727 millj. kr. í 771 millj. kr.

Hrein vaxtagjöld námu 502 millj. kr. og jukust um 4,8% milli tímabila, vaxtaþekja rekstrarhagnaðar tímabilsins í ár var 1,55% miðað við 1,52 sama tímabil á fyrra ári.

Rekstrarafkoma Félagsbústaða hf. fyrir verðlagsbreytingar lána og matsbreytingu eigna nam 269 millj. kr. á tímabilinu miðað við 248 millj. kr. fyrir sama tímabil 2015 sem er 8,3% hækkun hagnaðar.

Verðbreyting lána nam samtals 441 millj. kr. á tímabilinu.

Við mat á eignum Félagsbústaða til útleigu er stuðst við fasteignamat sem Þjóðskrá Íslands reiknar og tekur gildi í upphafi árs 2017 (verðmæti m.v. feb 2016), að teknu tilliti til 4,8% hækkunar á vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu frá febrúar 2016 til loka tímabilsins. Matsbreyting fjárfestingaeigna félagsins nam 5.554 mkr á fyrri hluta árs 2016 en var 1.399 mkr fyrir sama tímabil árið 2015.

Hagnaður Félagsbústaða hf. nam 5.382 millj.kr. á tímabilinu en var 1.161 millj.kr. á sama tímabili árið 2015.

Efnahagsreikningur 30.06.2016

Heildareignir Félagsbústaða hf. 30.06. 2016 námu 59,8 milljörðum kr. og jukust um 5,9 milljarða kr. á tímabilinu frá áramótum, eða um 10,9%. Matsbreytingar fjárfestingaeigna skýra eignaaukn-inguna að stærstum hluta. Eigið fé félagsins nam 27 milljörðum.kr. þann 30.06. 2016 og jókst um tæpa 5,4 milljarða kr. frá áramótum, eða um 24,8%. Eiginfjárhlutfall var 45,3% í þann 30.06. 2016 en var 40,2% í árslok 2015.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 148,3 millj. kr. á tímabilinu 1.1.-30.06. 2016 sem er um 33 millj. kr. minna en á sama tímabili árið á undan. Fjárfestingar á tímabilinu námu 304 millj. kr. miðað við 463 millj. kr. á sama tímabili árið áður. Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 157 millj. kr. samanborið við 278 millj. kr. á sama tímabili árið áður. Á tímabilinu 1.1. – 30.06 2016 keypti félagið 8 fasteignir.

2016 08 25 KG


2016 06 30 Felagsbustair arshlutareikningur undirr.pdf