Icelandic
Birt: 2016-08-24 18:31:50 CEST
Origo hf.
Reikningsskil

Heildarhagnaður Nýherja nam 111 mkr á fyrstu 6 mánuðum ársins

EBITDA 439 mkr á fyrri árshelmingi 2016

REYKJAVÍK - 24. ágúst 2016 - Nýherji kynnti í dag uppgjör annars ársfjórðungs og fyrri árshelmings 2016

Helstu upplýsingar:

  • Sala á vöru og þjónustu nam 3.794 mkr á öðrum ársfjórðungi (12% tekjuvöxtur frá F2 2015) og 7.126 mkr á fyrri árshelmingi (7,2% tekjuvöxtur frá 1H 2015) [F2 2015: 3.386 mkr, 1H 2015: 6.649 mkr] 
  • Framlegð nam 931 mkr (24,5%) á öðrum ársfjórðungi og 1.816 mkr (25,5%) á fyrri árshelming 2016 [F2 2015: 830 mkr (24,5%), 1H 2015: 1.637 mkr (24,6%)]
  • EBITDA nam 259 mkr (6,8%) á öðrum ársfjórðungi og 439 mkr á fyrri árshelmingi [F2 2015: 227 mkr (6,7%), 1H 2015: 452 mkr (6,8%)]
  • Heildarhagnaður á öðrum ársfjórðungi var 73 mkr og 111 mkr á fyrri árshelmingi [F2 2015: 69 mkr, 1H 2015: 111 mkr]
  • Eiginfjárhlutfall 30,8% í lok ársfjórðungs en var 29,5% í lok síðasta ársfjórðungs
  • Nýherji hf. hefur ráðið AGC Partners LLC til að styðja við undirbúning á mögulegu söluferli á Tempo ehf.

Finnur Oddsson, forstjóri:

„Afkoma Nýherjasamstæðunnar batnaði á öðrum ársfjórðungi miðað við fyrsta fjórðung þessa árs, en fyrri helmingur ársins markast af kostnaðarhækkunum vegna kjarasamninga. Heildarhagnaður samstæðunnar er 73 mkr á öðrum ársfjórðungi og 111 mkr fyrstu 6 mánuði ársins, sem er sambærilegt við fyrri árshelming 2015. 

Rekstur samstæðunnar gekk almennt ágætlega, sérstaklega hefur verið góður gangur í hugbúnaðartengdri starfsemi, bæði hjá Nýherja og dótturfélögum. Tekjur Tempo jukust um tæplega 40% (í USD) og viðskiptavinum fjölgar áfram hratt.  Til að styðja við þessa þróun höfum við lagt aukna áherslu á erlenda starfsemi Tempo með fjölgun starfsfólks í Montréal og opnun starfsstöðvar í San Francisco. Hjá TM Software hækkuðu tekjur um fjórðung, en mjög góð eftirspurn er eftir lausnum á öllum sérsviðum félagsins. Tekjur Applicon í Svíþjóð hafa að sama skapi aukist, afkoma er góð og unnið að stórum og spennandi verkefnum, sérstaklega á sviði bankalausna.  

Góður vöxtur hefur verið í sölu hugbúnaðarlausna hjá Nýherja, móðurfélagi, en aukin áhersla á þann þátt starfsemi okkar skilað því m.a. að Nýherji var valinn samstarfsaðili ársins af Microsoft í fyrsta skipti. Sala á tölvum og tengdum búnaði gekk vel, sérstaklega í hljóð- og myndlausnum og nýjum hýsingarlausnum, sem Nýherji býður í samstarfi við Verne, hefur verið afar vel tekið. 

Yfir það heila erum við nokkuð sátt við niðurstöðuna eftir ögrandi fyrsta fjórðung ársins. Verkefnastaða er góð, afar áhugaverð tækifæri í starfsemi dótturfélaga erlendis og horfur í rekstri samstæðunnar því ágætar. Kostnaðarhækkanir vegna kjarasamninga í upphafi árs verða þó áfram eitt stærsta viðfangsefnið á móðurfélagi Nýherja og verður áfram horft til hagræðingar eins og þörf krefur.

Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.

Sjá viðhengi.


2016.08.24 - Frettatilkynning Arshlutauppgjor F2 2016.pdf
Nyherji arshlutareikningur 30.6.2016.pdf