Icelandic
Birt: 2016-08-22 11:30:01 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

REITIR: Lindarhvoll selur 6,38% hlut í Reitum

Samkvæmt upplýsingum í frétt frá Landsbankanum lauk útboði á eignarhlut Ríkissjóðs Íslands í Reitum fasteignafélagi hf. klukkan 8:30 í dag, mánudaginn 22. ágúst 2016. Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með útboðinu.

Fjárfestar óskuðu eftir því að kaupa 73.010.000.- hluta í Reitum, eða sem nemur 9,9% af heildarhlutafé í Reitum.

Sölugengi í útboðinu var ákveðið 83,30 krónur á hlut. Heildarnafnverð samþykktra tilboða, eftir skerðingu var 47.222.796 hlutir eða sem samsvara 6,38% af heildarhlutafé Reita. Heildarsöluverðmæti samþykktra tilboða eftir skerðingu er því rúmlega 3,9 ma.kr. Að útboðinu loknu á Ríkissjóður ekki eignarhlut í Reitum.

Öll samþykkt tilboð voru boðin fjárfestum á sama gengi, þar sem lægsta samþykkta gengi réð sölugenginu. Samþykkt tilboð sem bárust á sama gengi og sölugengi voru skert sem nam umframeftirspurn, en þó ekki niður fyrir 200.000 hluti að nafnverði sem var lágmarksfjöldi hluta sem hægt var að bjóða í útboðinu. Tilboðum sem bárust á lægra gengi en sölugengi var hafnað.
Viðskiptadagur vegna útboðsins er 22. ágúst 2016 og greiðslu- og afhendingardagur vegna viðskiptanna er miðvikudagurinn 24. ágúst 2016.

Útboðið fór fram í samræmi við útboðsskilmála sem birtir voru á vefsíðu Landsbankans, www.landsbankinn.is þann 19. ágúst 2016.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Maríasson, forstöðumaður Markaðsviðskipta Landsbankans, s. 410-7335/863-9998
Arnar Arnarsson, Markaðsviðskipti Landsbankans, s. 410-7336/821-2083