Icelandic
Birt: 2016-08-19 20:48:08 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

REITIR: 6,38% eignarhlutur Ríkissjóðs í Reitum boðinn til sölu.

Samkvæmt frétt frá markaðsviðskiptum Landsbankans sem birt var í dag, býður Lindarhvoll ehf., fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands, til sölu allan eignarhlut Ríkissjóðs í Reitum fasteignafélagi hf. Um er að ræða áður útgefna hluti í Reitum og nemur eignarhluturinn 6,38% alls hlutafjár í Reitum. Salan mun fara fram í útboði sem er undanþegið útgáfu lýsingar í samræmi við heimild í c-lið, 1. töluliðar, 1. málsgreinar 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Lágmark hvers tilboðs er 200.000 hlutir í Reitum, og er lágmarksgengi í útboðinu 83,30 kr. á hlut. Tilboðsfrestur er til kl. 8.30 mánudaginn 22. ágúst nk. og munu niðurstöður verða birtar af hálfu Landsbankans að loknu útboði, og eigi síðar en kl. 9.30 sama dag. Sjá má fréttina í heild sinni hér.