Icelandic
Birt: 2016-08-16 09:00:39 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 32. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 494.000 eigin hluti fyrir 40.211.600 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð       Eigin hlutir eftir viðskipti
8.8.2016 14:45 350.000 81,4 28.490.000 14.355.355
8.8.2016 14:45 144.000 81,4 11.721.600 14.499.355
Samtals   494.000   40.211.600  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 15. mars 2016.              
              
Reitir hafa nú keypt samtals 14.499.355 hluti í félaginu sem samsvarar 86,82% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 1.226.738.957 krónum. Reitir eiga nú samtals 15.902.575 hluti, eða 2,15% af heildarhlutafé félagsins.              
              
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.700.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.