Icelandic
Birt: 2016-07-25 18:55:47 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 29. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 988.000 eigin hluti fyrir 81.510.000 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð     Eigin hlutir eftir viðskipti
19.7.2016 10:03 350.000 82,8 28.980.000 12.146.855
19.7.2016 10:03 144.000 82,8 11.923.200 12.290.855
20.7.2016 13:50 350.000 82,2 28.770.000 12.640.855
20.7.2016 13:50 144.000 82,2 11.836.800 12.784.855
Samtals   988.000   81.510.000  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 15. mars 2016.         
         
Reitir hafa nú keypt samtals 12.784.855 hluti í félaginu sem samsvarar 76,56% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 1.086.944.557 krónum. Reitir eiga nú samtals 14.188.075 hluti, eða 1,92% af heildarhlutafé félagsins.         
         
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.700.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.