English Icelandic
Birt: 2016-07-25 12:54:10 CEST
Icelandair Group hf.
Fjárhagsdagatal

Birting uppgjörs 2. ársfjórðungs 2016

Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung ársins 2016, miðvikudaginn 27. júlí 2016. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn fimmtudaginn 28. júlí 2016 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum. Kynningin hefst kl. 8:30 og verður í sal 2.  Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/