Icelandic
Birt: 2016-06-13 20:29:07 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 23. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.486.200 eigin hluti fyrir 125.339.840 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð     Eigin hlutir eftir viðskipti
6.6.2016 09:30 304.000 83,1 25.262.400 7.588.709
6.6.2016 09:30 46.000 83,1 3.822.600 7.634.709
6.6.2016 09:30 144.000 83,1 11.966.400 7.778.709
7.6.2016 12:27 4.200 85,2 357.840 7.782.909
8.6.2016 15:01 350.000 85,2 29.820.000 8.132.909
8.6.2016 15:01 144.000 85,2 12.268.800 8.276.909
10.6.2016 15:13 350.000 84,7 29.645.000 8.626.909
10.6.2016 15:13 144.000 84,7 12.196.800 8.770.909
Samtals   1.486.200   125.339.840  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 15. mars 2016.         
         
Reitir hafa nú keypt samtals 8.770.909 hluti í félaginu sem samsvarar 52,52% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 754.116.317 krónum. Reitir eiga nú samtals 10.174.129 hluti, eða 1,37% af heildarhlutafé félagsins.         
         
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.700.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.