Icelandic
Birt: 2016-05-30 18:12:04 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 21. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 350.000 eigin hluti fyrir 28.945.000 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð    Eigin hlutir eftir viðskipti
23.5.2016 09:34 350.000 82,7 28.945.000 7.276.109
Samtals   350.000   28.945.000  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 15. mars 2016.         
         
Reitir hafa nú keypt samtals 7.276.109 hluti í félaginu sem samsvarar 43,57% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 628.053.217 krónum. Reitir eiga nú samtals 8.679.329 hluti, eða 1,17% af heildarhlutafé félagsins.         
         
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.700.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.