Icelandic
Birt: 2016-05-23 18:03:40 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 20. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.832.000 eigin hluti fyrir 157.037.400 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð    Eigin hlutir eftir viðskipti
17.5.2016 11:01 350.000 86,8 30.380.000 5.444.109
17.5.2016 11:01 144.000 86,8 12.499.200 5.588.109
18.5.2016 10:01 350.000 86,3 30.205.000 5.938.109
18.5.2016 10:01 144.000 86,3 12.427.200 6.082.109
19.5.2016 14:55 350.000 85,8 30.030.000 6.432.109
20.5.2016 09:38 350.000 84 29.400.000 6.782.109
20.5.2016 15:24 144.000 84 12.096.000 6.926.109
Samtals   1.832.000   157.037.400  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 15. mars 2016.         
         
Reitir hafa nú keypt samtals 6.926.109 hluti í félaginu sem samsvarar 41,47% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 599.108.217 krónum. Reitir eiga nú samtals 8.329.329 hluti, eða 1,13% af heildarhlutafé félagsins.         
         
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.700.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.