Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.
Í 18. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 3.043.207 eigin hluti fyrir 64,3 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning |
Tími |
Keyptir hlutir |
Viðskiptaverð |
Kaupverð |
Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
2.5.2016 |
09:30 |
908.788 |
21,10 |
19.175.427 |
15.975.255 |
3.5.2016 |
15:01 |
500.000 |
21,20 |
10.600.000 |
16.475.255 |
3.5.2016 |
15:01 |
408.788 |
21,20 |
8.666.306 |
16.884.043 |
4.5.2016 |
09:30 |
500.000 |
21,10 |
10.550.000 |
17.384.043 |
4.5.2016 |
09:30 |
408.788 |
21,10 |
8.625.427 |
17.792.831 |
6.5.2016 |
10:51 |
306.843 |
21,20 |
6.505.072 |
18.099.674 |
6.5.2016 |
11:28 |
10.000 |
21,20 |
212.000 |
18.109.674 |
Samtals |
|
3.043.207 |
|
64.334.231 |
|
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. apríl 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 9.707.163 hluti í félaginu sem samsvarar 40,4% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 208,1 milljónum króna. TM á nú samtals 2,5% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 24.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2017 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Henni lýkur þó í síðasta lagi 31. mars 2017. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is
|