English Icelandic
Birt: 2016-05-06 18:23:36 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Kaupsamningur undirritaður um kaup á tveimur Boeing 767-300 flugvélum

Í þessum mánuði verða tvær Boeing 767-300 vélar teknar í notkun í leiðakerfi Icelandair, dótturfélags Icelandair Group. Til viðbótar hefur nú verið undirritaður kaupsamningur um kaup á tveimur Boeing 767-300 vélum.  Vélarnar verða afhentar á næstu mánuðum og verður þeim breytt til samræmis við aðrar vélar í Icelandair flugflotanum. Gert er ráð fyrir að breytingum verði lokið í ársbyrjun 2017.  Kaupverð vélanna er trúnaðarmál. Það er því gert ráð fyrir að  fjórar 767-300 vélar verði í leiðakerfi Icelandair árið 2017.  Boeing 767-300 vélarnar taka 262 farþega á meðan Boeing 757-200 vélarnar taka 183 farþega.  Fjárfestingunni er ætlað að styðja við áframhaldandi innri vöxt félagsins sem ráðgerður er á næsta ári.

 

Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group
Sími: 896-1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group
Sími: 665-8801