English Icelandic
Birt: 2016-05-06 17:59:35 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur apríl 2016

Í apríl flutti félagið 214 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 13% fleiri en í apríl á síðasta ári. Framboðsaukning  í sætiskílómetrum nam 18%. Sætanýting var 80,6% og lækkaði um 1,6 prósentustig á milli ára.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 23 þúsund í apríl sem er fjölgun um 6% á milli ára.  Framboð félagsins í apríl var aukið um 1% samanborið við fyrra ár. Sætanýting nam 71,9% og jókst um 1,9 prósentustig á milli ára. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi stóðu í stað á milli ára.  Fraktflutningar jukust um 16% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 15% miðað við apríl 2015. Herbergjanýting var 74,3% en hún nam 68,5% í apríl í fyrra.

 

MILLILANDAFLUG APR 16 APR 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Fjöldi farþega 213.535 189.717 13% 789.419 666.802 18%
Sætanýting 80,6% 82,3% -1,6 %-stig 79,7% 80,0% -0,3 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 805,4 681,8 18% 2.947,9 2.457,6 20%
             
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG APR 16 APR 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Fjöldi farþega 23.373 22.139 6% 89.301 85.252 5%
Sætanýting 71,9% 70,0% 1,9 %-stig 73,0% 71,3% 1,7 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 10,7 10,6 1% 39,5 38,8 2%
             
LEIGUFLUG APR 16 APR 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 100,0% 0,0 %-stig 100,0% 100,0% 0,0 %-stig
Seldir blokktímar 1.985 1.978 0% 8.158 7.195 13%
             
FRAKTFLUTNINGAR APR 16 APR 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.716 7.489 16% 35.226 31.982 10%
             
HÓTEL APR 16 APR 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 23.550 22.170 6% 94.985 88.680 7%
Seldar gistinætur 17.486 15.194 15% 71.157 65.183 9%
Herbergjanýting 74,3% 68,5% 5,7 %-stig 74,9% 73,5% 1,4 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Traffic data April 2016.pdf