Icelandic
Birt: 2016-05-03 23:44:22 CEST
TM hf.
Fyrirtækjafréttir

Standard & Poor’s (S&P) staðfestir matseinkunn TM.

Standard & Poors (S&P) staðfesti í dag matseinkunnina BBB fyrir Tryggingamiðstöðina (TM). Horfur eru metnar stöðugar. Matið er gefið út vegna afskráningar TM úr matsferli S&P en félagið hefur tekið ákvörðun um að matsfyrirtækið A.M. Best muni hér eftir meta fjárhagslegan styrk TM enda er A.M. Best sérhæft í mati á vátryggingafélögum.

TM hefur frá árinu 2007 verið með styrkleikamat frá matsfyrirtækjum, eitt íslenskra tryggingafélaga.  Matið veitir TM möguleika á að sækja vátryggingaviðskipti á erlenda markaði og er því mikilvægur liður í vaxtarmöguleikum félagsins.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning S&P um niðurstöður matsins á TM.

 

 


RatingsDirect_Research Update_1627361_May-03-2016_07_48.pdf