Icelandic
Birt: 2016-05-02 14:01:19 CEST
Hagar hf.
Fjárhagsdagatal

Hagar hf. - birting ársuppgjörs 2015/16

Hagar hf. birta ársuppgjör sitt fyrir rekstrarárið 1. mars 2015 – 29. febrúar 2016, fimmtudaginn 12. maí nk.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík, föstudaginn 13. maí kl. 8:30 en þar mun Finnur Árnason forstjóri Haga kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt stjórnendum félagsins.

Kynningarefni, ásamt upptöku af fundinum, verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu Haga, www.hagar.is.