Icelandic
Birt: 2016-04-27 18:24:38 CEST
Origo hf.
Reikningsskil

EBITDA Nýherja 180 mkr á fyrsta ársfjórðungi 2016

Hlutfall launa af tekjum eykst frá fyrra ári.

Helstu upplýsingar:

  • Vöru- og þjónustusala í F1 nam 3.332 mkr (2,1% tekjuvöxtur frá F1 2015) [F1 2015: 3.263 mkr]

  • Framlegð nam 885 mkr (26,6%) í F1 [F1 2015: 808 mkr (24,7%)]

  • Heildarhagnaður í F1 nam 38 mkr [F1 2015: 41 mkr]

  • EBITDA nam 180 mkr (5,4%) í F1 [F1 2015: 225 mkr (6,9%)]

  • Eiginfjárhlutfall 29,5% í lok ársfjórðungs 2016, en var 28,0% í lok árs 2015

  • Veltufjárhlutfall 1,46 í lok fyrsta ársfjórðungs 2016 en var 1,52 í lok árs 2015

  • Ríflega 70% starfsfólks gerði kaupréttarsamning í samræmi við samþykkt aðalfundar félagsins

     

Finnur Oddsson, forstjóri:

“Heildarhagnaður Nýherjasamstæðunnar var 38 mkr á fyrsta ársfjórðungi, sem er undir þeim kröfum sem við gerum til rekstrarins. Kostnaðarhækkanir koma niður á  afkomunni, einkum vegna óvæntrar niðurstöðu kjarasamninga um hækkun launa í upphafi árs. Auk tímabundinnar vöruvöntunar á PC búnaði, sem kom niður á sölu, þá höfðu kjarasamningar veruleg neikvæð áhrif á rekstur Nýherja og drógu niður heildarafkomu móðurfélagsins. Afkoma dótturfélaga var í heild lítillega undir áætlun, en ágæt eftirspurn er þó eftir þjónustu, sérstaklega vegna sérlausna fyrir ferðaþjónustu hjá TM Software.  Tekjur aukast svo áfram hjá Tempo með enn frekari fjölgun viðskiptavina.

 

Ljóst er að kostnaðarhækkanir vegna launa verða okkar stærsta viðfangsefni framundan og hagrætt verður eins og þörf krefur. Að sama skapi verður áfram horft til tækifæra til styrkingar á eiginfjárstöðu félagsins, sem til lengri tíma þarf að bæta. Þó að afkoma samstæðunnar á fjórðungnum sé undir væntingum eru horfur ágætar, enda verkefnastaða almennt góð, bæði hjá Nýherja og dótturfélögum. Það er svo til marks um trú okkar sem vinnum hjá Nýherja á fyrirtækið og framtíðarstefnu þess að ríflega 70% starfsfólks gerðu kaupréttasamning í samræmi við samþykkt aðalfundar.”

 


2016.04.27 - Frettatilkynning vegna F1 arshlutauppgjors.pdf
Nyherji arshlutareikningur 31.3.2016.pdf