Icelandic
Birt: 2016-04-25 11:29:34 CEST
TM hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Í 16. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 25.303 eigin hluti fyrir 0,6 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
22.4.2016 13:09 25.303 21,85 552.871 40.721.472
Samtals   25.303   552.871  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. apríl 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.

TM hefur nú keypt samtals 3.284.782 hluti í félaginu sem samsvarar 13,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 70,1 milljónum króna. TM á nú samtals 5,5% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 24.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2017 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Henni lýkur þó í síðasta lagi 31. mars 2017. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is