Icelandic
Birt: 2016-04-18 17:45:07 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 15. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 844.000 eigin hluti fyrir 74.012.600 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð          Eigin hlutir eftir viðskipti
13.4.2016 11:52 350.000 87,5 30.625.000 2.038.000
15.4.2016 10:05 350.000 87,8 30.730.000 2.388.000
15.4.2016 10:27 144.000 87,9 12.657.600 2.532.000
Samtals   844.000   74.012.600  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 15. mars 2016.         
         
Reitir hafa nú keypt samtals 2.532.000 hluti í félaginu sem samsvarar 15,16% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 218.693.000 krónum. Reitir eiga nú samtals 0,53% af heildarhlutafé félagsins.         
         
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.700.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.