Icelandic
Birt: 2016-04-14 11:02:37 CEST
Reykjanesbær
Fyrirtækjafréttir

Reykjanesbær - Fjármál Reykjanesbæjar

Vísað er til fyrri tilkynninga Reykjanesbæjar um viðræður við kröfuhafa um endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar og stofnana hans. Eins og greint var frá í tilkynningu Reykjanesbæjar hinn 7. apríl sl. samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar að bera undir kröfuhafa samkomulag um fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar og stofnana með tilteknum fyrirvörum. Í tilkynningunni kom einnig fram að bæjarráð hafi samþykkt að næðist ekki samkomulag fyrir 15. apríl nk. yrði óskað eftir því að sveitarfélaginu væri skipuð fjárhaldsstjórn skv. 86. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Ein forsenda gildistöku samkomulagsins var sú að allir kröfuhafar Reykjanesbæjar og stofnana undirrituðu það. Þrátt fyrir að meirihluti kröfuhafa hafi nú skilað undirrituðu samþykki sínu til Reykjanesbæjar og stofnana er ljóst samkomulag mun ekki nást þar sem minnihluti kröfuhafa hefur synjað að ganga til samninga á grundvelli þess.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri.