Icelandic
Birt: 2016-04-12 18:14:59 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Niðurstöður hluthafafundar

Eik fasteignafélag hf. : Niðurstöður aðalfundar Eikar fasteignafélags hf. 2016

Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. var haldinn þriðjudaginn 12. apríl 2016 á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi 3.

Tillögur stjórnar sem lágu fyrir fundinn má finna á www.eik.is/fjarfestar/hluthafar

       1.       Ársreikningur

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2015.

       2.       Ráðstöfun hagnaðar félagins á rekstrarárinu 2015

Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um að greiða út 820.000.000 kr. í arð. Arðsákvörðunardagur er 12. apríl 2016 sem þýðir að skráðir hluthafar í lok dags 14. apríl 2016 (arðsréttindadagur) eiga rétt á arðgreiðslu. Arðleysisdagur er því 13. apríl 2016 sem er fyrsti viðskiptadagur eftir arðsákvörðunardag og útborgunardagur er 25. maí 2016.

       3.       Starfskjarastefna félagsins

Aðalfundur samþykkti starfskjarastefnu félagsins eins og hún var lögð fyrir fundinn.

       4.       Kjör stjórnar og ákvörðun um þóknun til stjórnar fyrir störf þeirra fyrir komandi starfsár

Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn félagsins:

  • Agla Elísabet Hendriksdóttir
  • Arna Harðardóttir
  • Eyjólfur Árni Rafnsson
  • Frosti Bergsson
  • Guðrún Bergsteinsdóttir

Aðalfundur samþykkti að stjórnar- og nefndarlaun verði:
Laun hvers stjórnarmanns nemi  250.000 kr. á mánuði og stjórnarformaður fái greidd tvöföld laun eða 500.000 kr. á mánuði.
Laun nefndarmanna í starfskjaranefnd verði 200.000 kr. á ári og laun formanns starfskjaranefndar verði 300.000 kr. á ári.
Laun nefndarmanna endurskoðunarnefndar verði ákveðin af stjórn félagsins.

       5.       Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags

Aðalfundur samþykkti að KPMG ehf. yrði endurkjörið endurskoðunarfélag Eikar fasteignafélags hf.

       6.       Önnur mál sem löglega eru fram borin

Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl. 16:10.

HUG#2002474