Icelandic
Birt: 2016-04-12 16:17:38 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

REITIR: Skráð lækkun hlutafjár

Á aðalfundi Reita fasteignafélags hf. þann 15. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um 14.388.087 kr. að nafnvirði. Nam það eigin hlutafé félagsins eins og það stóð þann 17. febrúar 2016 og því þannig eytt.

Lögmælt skilyrði lækkunarinnar hafa verið uppfyllt og hefur hlutafjárlækkunin nú verið skráð í Fyrirtækjaskrá. Skráð hlutafé Reita eftir lækkunina er að nafnvirði 740.325.774 kr. en var fyrir lækkunina 754.713.861 kr. að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669-4416.