Icelandic
Birt: 2016-04-11 16:09:43 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

REITIR: Breytingar á framkvæmdastjórn

Kristófer Þór Pálsson hefur verið ráðinn til Reita fasteignafélags hf. og mun hann taka þar við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptasviðs frá 1. júní nk. Núverandi Viðskipta- og þróunarsviði verður skipt upp og mun núverandi framkvæmdastjóri sviðsins, Friðjón Sigurðarson, taka við framkvæmdastjórn nýs sviðs, Þróunarsviðs, sem sett verður á laggirnar frá sama tíma. Framangreindar skipulagsbreytingar eru mikilvægur þáttur í að styðja við framgang Reita og við þau fjölmörgu stóru verkefni sem framundan eru hjá félaginu. Þar ber fyrirhugaða uppbyggingu á Kringlusvæðinu einna hæst.

Kristófer Þór er 35 ára, með B.S. gráðu í viðskiptafræðum frá HR með áherslu á fjármál. Hann er jafnframt með próf í verðbréfamiðlun. Kristófer Þór starfaði hjá Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka frá 2004 – 2007. Eftir það starfaði hann hjá Fjárstýringu Kaupþings frá 2007 – 2008, þegar hann færði sig yfir í Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka þar sem hann starfaði frá 2009 – 2013. Kristófer Þór hefur verið forstöðumaður á Fjárfestingabankasviði Arion banka síðustu ár. Kristófer Þór er kvæntur Kristrúnu Helgu Bernhöft og eiga þau þrjú börn.

Nánari upplýsingar veitir Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320.