Icelandic
Birt: 2016-04-01 11:15:00 CEST
TM hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. þann 17. mars 2016 var samþykkt að veita stjórn heimild til kaupa á eigin hlutum í félaginu með framkvæmd endurkaupaáætlunar, sbr. II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Stjórn TM hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar aðalfundar félagsins tekið ákvörðun um endurkaup á eigin hlutum í þeim tilgangi að lækka hlutafé félagsins. Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd af Kviku hf. sem tekur þar með allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Fjöldi hluta sem keyptur skal samkvæmt endurkaupaáætluninni verður að hámarki 24.000.000 hlutir, en það jafngildir 3,2% af útgefnu hlutafé félagsins, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 500 milljónir króna. Kaupin verða framkvæmd í áföngum með þeim skilyrðum að kaup hvers dags mega að hámarki vera 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í mars 2016 en það jafngildir að dagleg kaup megi að hámarki vera 908.788 hlutir. Endurgjald fyrir hvern hlut skal ekki nema hærra verði en nemur síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði, hvort sem reynist hærra. Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina skulu tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar aðalfundur félagsins 2017 verður haldinn ef kaupum samkvæmt áætluninni er ekki lokið áður. Henni lýkur þó í síðasta lagi 31. mars 2017.

 

Reykjavík,  1. apríl 2016.

Tryggingamiðstöðin hf.