Icelandic
Birt: 2016-03-22 16:44:21 CET
TM hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar frá 1. febrúar 2016 lokið.

Í 11. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 611.114 eigin hluti fyrir 14,2 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
16.3.2016 12:20 29.765 23,30 693.525 36.855.341
16.3.2016 13:54 68.000 23,30 1.584.400 36.923.341
16.3.2016 13:57 513.349 23,30 11.961.032 37.436.690
Samtals   611.114   14.238.956  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. febrúar 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.

TM hefur nú keypt samtals 10.735.853 hluti í félaginu sem samsvarar 71,6% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 243,2 milljónum króna. TM á nú samtals 5,1% af heildarhlutafé félagsins.

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar sem var hrint í framkvæmd 1. febrúar 2016 er hér með lokið enda voru tímamörk hennar miðuð við dagsetningu aðalfundar félagsins, 17. mars 2016.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is