Icelandic
Birt: 2016-03-17 18:52:12 CET
TM hf.
Niðurstöður hluthafafunda

Tryggingamiðstöðin hf. - Niðurstöður aðalfundar 17. mars 2016.

Á aðalfundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í dag, 17. mars 2016, voru samþykktar tillögur um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, lækkun hlutafjár, heimild til að kaupa eigin hluti, starfskjarastefnu félagsins og þóknun til stjórnar og undirnefnda stjórnar.

Nánar um niðurstöður aðalfundarins vísast til viðhengis sem fylgir tilkynningu þessari.

Stjórn félagsins fyrir næsta starfsár var sjálfkjörin eins og áður hefur verið tilkynnt.  Verkaskipting innan stjórnarinnar er óbreytt frá fyrra starfsári eða sem hér segir:

Í aðalstjórn:
Örvar Kærnested formaður,
Kristín Friðgeirsdóttir varaformaður,
Andri Þór Guðmundsson meðstjórnandi,
Linda Björk Bentsdóttir meðstjórnandi, og
Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir meðstjórnandi.

Í varastjórn:
Bjarki Már Baxter og
Bryndís Hrafnkelsdóttir.


20160317 - Niurstour aalfundar TM - tillogur.doc