Kvika banki hf.: Niðurstöður aðalfundar Kviku banka hf. Aðalfundur Kviku banka hf. var haldinn fimmtudaginn 17. mars 2016 á skrifstofu félagsins í Reykjavík. Helstu niðurstöður fundarins voru eftirfarandi: 1. Ársreikningur vegna ársins 2015 var samþykktur eins og hann var lagður fram. 2. Ákvörðun um greiðslu arðs var frestað þar til niðurstöður tillögu um lækkun hlutafjár, sbr. liður 4 hér að neðan, liggja fyrir. 3. Samþykktar voru breytingar á samþykktum félagsins. Meðal breytinga sem samþykktar voru er að stjórnarmönnum félagsins er fækkað úr sjö í fimm. Þá var stjórn félagsins heimilað að gefa út áskriftarréttindi. Hámarkshlutafjárhækkun til að mæta útgáfu áskriftarréttindanna skal að hámarki vera að nafnvirði kr. 130.0000.000. Frestur til notkunar á heimildinni er til aðalfundar ársins 2017. 4. Samþykkt var tillaga um að stjórn félagsins verði falið að undirbúa lækkun á hlutafé félagsins með hlutfallslega jafnri greiðslu til hluthafa, allt að kr. 1.000.000.000,-. Endanleg ákvörðun um lækkunina verður hjá hluthafafundi að fenginni tillögu stjórnar. 5. Stjórnarkjör fór fram. Í aðalstjórn félagsins voru kjörin: - Þorsteinn Pálsson - Finnur Reyr Stefánsson - Jónas Hagan Guðmundsson - Inga Björg Hjaltadóttir - Anna Skúladóttir
Til setu í varastjórn félagsins voru kjörin: - Kristín Guðmundsdóttir - Ármann Fr. Ármannsson HUG#1995677
|