Icelandic
Birt: 2016-03-16 10:13:04 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

CORRECTION: REITIR: Ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Í tilkynningu um framkvæmd endurkaupaáætlunar var ranglega tiltekið að 494.636 hlutir væru meðalvelta febrúarmánaðar 2016, en um er að ræða fjórðung af meðalveltu febrúarmánaðar 2016. Hér á eftir fer því leiðrétt tilkynning:

Stjórn Reita hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar félagsins þann 15. mars 2016 tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlað er að kaupa allt að 16,7 milljónir hluta sem jafngildir 2,30% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.500 milljónir kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst á morgun, 16. mars 2016, og mun áætlunin vera í gildi til aðalfundar ársins 2017.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi NASDAQ OMX á Íslandi hf., hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 494.636 hlutir sem var fjórðungur meðalveltu febrúarmánaðar 2016.

Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd af Arctica Finance hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660 3320 og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.