Icelandic
Birt: 2016-03-14 10:11:02 CET
TM hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Í 10. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 2.470.302 eigin hluti fyrir 57,9 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
7.3.2016 09:42 22.500 23,70 533.250 34.377.774
7.3.2016 15:22 499.000 23,70 11.826.300 34.876.774
8.3.2016 09:32 7.428 23,70 176.044 34.884.202
8.3.2016 09:32 603.686 23,70    14.307.358 35.487.888
9.3.2016 13:46 92.960 23,35 2.170.616 35.580.848
9.3.2016 14:26 22.500 23,35 525.375 35.603.348
10.3.2016 11:01 611.114 23,35 14.269.512 36.214.462
11.3.2016 09:38 611.114 23,10 14.116.733 36.825.576
Samtals   2.470.302   57.925.188  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. febrúar 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.

TM hefur nú keypt samtals 10.124.739 hluti í félaginu sem samsvarar 67,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 229,0 milljónum króna. TM á nú samtals 5,0% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins þann 17. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is