Icelandic
Birt: 2016-03-07 17:25:32 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

REITIR: Útboð á skuldabréfum 10. mars

Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 10. mars næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum REITIR151244 og REITIR151124 sem báðir eru verðtryggðir með jöfnum greiðslum og veðtryggðir með fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.

Fjárfestingabankasvið Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu. Heildarstærð útboðsins getur verið allt að 4,4 milljarðar kr. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er í hvorum flokki. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, lokaskilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. hefur birt í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins. Viðauki við grunnlýsingu, með vísun í áður birtar tilkynningar, verður birtur á sömu vefsíðu áður en ný skuldabréf í framangreindum flokkum verða tekin til viðskipta.

Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.