Icelandic
Birt: 2016-02-29 15:47:49 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

REITIR: Framlenging endurkaupaáætlunar

Stjórn Reita hefur ákveðið að framlengja gildistíma núgildandi endurkaupaáætlunar til 15. mars næstkomandi, en samkvæmt ákvörðun stjórnar frá 28. maí 2015 átti hún að gilda til dagsins í dag.

Aðrir þættir ákvörðunarinnar haldast óbreyttir, en áður birta tilkynningu um framkvæmd endurkaupaáætlunar má finna hér.

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320 og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416.