Icelandic
Birt: 2016-02-29 10:25:40 CET
TM hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Í 8. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.315.567 eigin hluti fyrir 30,1 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
23.2.2016 13:23 410.000 22,75 9.327.500 32.593.497
23.2.2016 15:08 59.553 22,75 1.354.831 32.653.050
24.2.2016 10:26 19.900 22,75 452.725 32.672.950
24.2.2016 14:06 15.000 22,75      341.250 32.687.950
24.2.2016 14:45 200.000 22,75 4.550.000 32.887.950
25.2.2016 11:36 611.114 23,05 14.086.178 33.499.064
Samtals   1.315.567   30.112.483  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. febrúar 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.

TM hefur nú keypt samtals 6.798.227 hluti í félaginu sem samsvarar 45,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 151,4 milljónum króna. TM á nú samtals 4,5% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins þann 17. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is