Icelandic
Birt: 2016-02-22 17:26:05 CET
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf. : Birting ársreiknings og uppgjör fjórða ársfjórðungs 2015

Eik fasteignafélag hf. mun birta ársreikning sinn fyrir árið 2015 ásamt uppgjöri fyrir fjórða ársfjórðung 2015 eftir lokun markaða mánudaginn 29. febrúar 2016.

Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 2. mars 2015 klukkan 8:30 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl 8:00.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna:

  • Uppgjör ársins
  • Rekstraráætlun 2016
  • Fjárfestingu félagsins í Hóteli 1919

Að loknum kynningum munu þeir svara spurningum.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820-8980.

HUG#1988207