Eik fasteignafélag hf.: Rekstraráætlun 2016 Stjórnendur Eikar fasteignafélags hf. hafa gert rekstraráætlun fyrir árið 2016. Helstu tölur úr henni eru: - Tekjur verða 6.879 m.kr.
- Gjöld verða 2.041 m.kr.
- Skrifstofu og stjórnunarkostnaður verður 305. m.kr
- Rekstrarhagnaður fyrir viðhald verður 4.533 m.kr.
- Viðhald og endurbætur verða 313 m.kr.
- EBITDA verður 4.483 m.kr.
Um rekstraráætlunina Leigutekjur ársins eru áætlaðar miðað við gildandi leigusamninga við birtingu spárinnar ásamt spá um breytingar á leigusamningum innan ársins 2016. Það er Eik fasteignafélagi ánægjuefni að tilkynna um, að í dag 15. febrúar 2016, hafi náðst samkomulag um endurnýjun leigusamninga við Símann og Mílu. Samkomulagið felur í sér að leigusamningar eru lengdir, Síminn skilar hluta af því húsnæði sem félagið er með í leigu í dag í áföngum á árinu 2016 ásamt því að leiguverð eftirstandandi samninga mun lækka. Nánar er farið út í endurnýjunina í rekstraráætluninni. Meðfylgjandi rekstraráætlun ársins tekur tillit til nýgerðra samninga við Símann og Mílu ásamt nýlegra kaupa félagsins á Heimshótelum ehf. og Hóteli 1919 ehf. Nánari upplýsingar veita: Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200 / 861-3027 Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820 8980 HUG#1986162
|