Icelandic
Birt: 2016-02-12 10:30:06 CET
TM hf.
Reikningsskil

Hagnaður TM árið 2015 nam 2,8 milljörðum króna.

Á stjórnarfundi þann 12. febrúar 2016 samþykkti stjórn og forstjóri TM ársreikning félagsins fyrir árið 2015.

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM:

„Hagnaður ársins var meiri en gert var ráð fyrir og er allur til kominn vegna fjárfestingastarfsemi. Miklar sveiflur einkenndu reksturinn á árinu. Samsett hlutfall í vátryggingastarfsemi var 103% fyrir árið í heild og hafði þá lækkað úr 126% frá fyrsta fjórðungi. Afkoma af fjárfestingum var á sama tíma langt umfram áætlanir og jukust fjárfestingatekjur um 55% milli ára. Þessi sviðsmynd er ekki ný af nálinni þar sem skarpri aukningu í tjónakostnaði á hagvaxtarskeiði fylgja oft á tíðum miklar hækkanir á fjárfestingaeignum.

 

Helstu niðurstöður fjórða ársfjórðungs og ársins 2015 voru eftirfarandi:

  4F 2015 4F 2014 ∆% 2015 2014 ∆%
Eigin iðgjöld 3.203 2.841 362 13% 12.635 11.305 1.330 12%
Fjárfestingatekjur 1.287 896 391 44% 4.061 2.615 1.446 55%
Aðrar tekjur 15 52 -37 -70% 44 82 -38 -46%
Heildartekjur 4.506 3.789 717 19% 16.741 14.002 2.739 20%
Eigin tjón -2.723 -2.416 -307 13% -10.318 -8.654 -1.664 19%
Rekstrarkostnaður -807 -712 -95 13% -3.099 -2.873 -226 8%
Fjármagnsgjöld -21 -12 -9 70% -158 -58 -100 170%
Virðisrýrnun útlána 56 37 19 52% 1 1 0 0%
Heildargjöld -3.495 -3.103 -392 13% 13.573 11.585 1.988 17%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.011 685 326 48% 3.167 2.417 750 31%
Tekjuskattur -160 -152 -8 5% -340 -342 2 -1%
Hagnaður 851 533 318 60% 2.827 2.074 753 36%

Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Aukinn tjónakostnaður hefur minnst áhrif á iðgjöld tryggra og tjónlausra viðskiptavina.

Viðbrögð við auknum tjónakostnaði hafa í megin atriðum falið í sér endurskoðun afslátta af grunniðgjaldaskrám til viðskiptavina. Afslættir í stærstu greinunum eins og ökutækjatryggingum höfðu farið hækkandi á árunum 2010-2013, þegar tjónatíðni lækkaði samhliða minni umferð og slaka í hagkerfinu. Endurskoðun á afsláttakjörum er gerð með það að markmiði að iðgjöld tryggra og tjónlausra viðskiptavina verði fyrir minnstum áhrifum. Gripið var til skipulagsbreytinga á síðari hluta ársins til að auka enn á fagleg vinnubrögð í áhættumati og verðlagningu og standa vonir til að þær muni skila þeim árangri að langtímamarkmið félagsins um samsett hlutfall undir 95%, verði að veruleika innan tveggja ára.

Ávöxtun fjáfestingaeigna rúm 15% á ársgrundvelli.

Fjárfestingatekjur námu rúmlega 4 milljörðum þar sem gengismunur hlutabréfa og sérhæfðra fjárfestinga skiptir mestu en ávöxtun af þeim var um og yfir 30%. Ávöxtun skuldabréfa var rúm 6% sem var nokkuð undir viðmiði og skýrist af samsetningu eignasafnsins þar sem óverðtryggð skuldabréf vógu þyngra en verðtryggð sem hækkuðu meira á árinu og vegna þess að líftími skuldabréfasafnsins er frekar stuttur. Um 240 milljón króna neikvæð ávöxtun var af erlendum eignum félagsins vegna styrkingar krónunnar gagnvart helstu viðskiptamyntum. Vegna góðrar afkomu fjárfestinga er arðsemi félagsins á árinu 2015 vel viðunandi eða 24% sem er umfram markmið félagsins um að ávöxtun eigin fjár skuli vera yfir 15% á ársgrundvelli.

 

Lykiltölur fjórða ársfjórðungs og ársins 2015 voru eftirfarandi:

 

  4F 2015 4F 2014 ∆% 2015 2014 ∆%
Hagnaður á hlut (kr.) 1,17 0,72 0,45 63% 3,84 2,75 1,09 40%
Arðsemi eigin fjár (m.v. 12m) 31% 16%     24% 15%    
Eiginfjárhlutfall 38% 45%     38% 45%    
Handbært fé frá rekstri         2.559 2.283 276 12%
Vátryggingastarfssemi                
Tjónshlutfall 85% 85%     82% 77%    
Kostnaðarhlutfall 22% 23%     22% 22%    
Samsett hlutfall 107% 108%     103% 99%    
Hagnaður/tap -359 -215 -144 67% -1 291 -292 -100%
Framlegð -218 -215 -3 1% -416 117 -533 -456%
Fjárfestingar                
Ávöxtun fjáreigna 4,9% 3,4%     15,4% 10,3%    
Hagnaður/tap 851 533 318 60% 2.827 2.074 753 36%

 

Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Tillaga gerð um 1,5 milljarða króna arðgreiðslu.

Stjórn TM hefur sett fram skýr markmið um áhættuvilja með vikmörkum sem auðveldar stýringu á heildaráhættu félagsins. Markmið um gjaldþolshlutfall samkvæmt áhættuviljanum er 150% og vikmörkin eru 140% til 170%. Arðgreiðslutillaga ársins 2016 byggir á þessum markmiðum og leggur stjórn TM til 1.500 m.kr. arðgreiðslu á árinu 2016. Að auki leggur stjórn til að allt að 1.500 m.kr. verði varið til kaupa á eigin bréfum. Endanleg fjárhæð endurkaupanna mun ráðast af möguleikum félagsins við að finna hagkvæmustu fjármagnsskipan. Ítarleg endurkaupaáætlun verður lögð fyrir á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 17.mars næstkomandi.

Áætlaður hagnaður ársins 2016 er 2,4 milljarðar króna fyrir tekjuskatt

  1F2016 2F2016 3F2016 4F2016 Á 2016 2015 ∆%
Eigin iðgjöld 3.314 3.427 3.526 3.394   13.662   12.635 1027 8%
Fjárfestingatekjur 517 772 513 772     2.574     4.061 -1.487 -37%
Aðrar tekjur 11 9 9 8          37          44 -7 -16%
Heildartekjur 3.842 4.207 4.048 4.174   16.272   16.741 -466 -3%
Eigin tjón -2.809 -2.518 -2.457 -2.547 -10.331 -10.318 -13 0%
Rekstrarkostnaður -889 -855 -766 -796 -3.306 -3.099 -207 7%
Fjármagnsgjöld -50 -70 -65 -43 -227 -158 -69 44%
Virðisrýrnun útlána -3 -3 -3 -3 -12 1 -13 -1300%
Heildargjöld -3.750 -3.446 -3.291 -3.389 -13.877 -13.573 -304 2%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 92 761 757 785     2.395     3.167 -772 -24%

Fjárhæðir eru í milljónum króna.

 

Lykiltölur ársins 2016 eru áætlaðar eftirfarandi:

 

Vátryggingastarfssemi 1F2016 2F2016 3F2016 4F2016 Á 2016 2015
Tjónshlutfall 85% 73% 70% 75% 76% 82%
Kostnaðarhlutfall 24% 22% 19% 21% 21% 22%
Samsett hlutfall 108% 96% 89% 96% 97% 103%
Hagnaður/tap -127 375 518 330 1.097 -1,4
Framlegð -274 150 387 141 404 -416
Fjárfestingar            
Ávöxtun fjáreigna* 2,0% 3,0% 2,0% 2,9% 9,9% 15,4%
Arðsemi eigin fjár* 3% 31% 29% 28% 20% 24%

 

*Í forsendum við útreining er gert ráð fyrir 1.500 m. kr. arðgreiðslu og endurkaupum á eigin bréfum upp á 300 m. kr. á 1F 2016. Áætluð arðsemi eigin fjár á árinu 2016 er fyrir skatta.

 

Standard & Poor's staðfestir hækkun á fjárhagslegum styrkleika TM.

Þann 9. febrúar síðastliðinn staðfesti matsfyrirtækið Standard & Poor's (S&P) fjárhagslega styrkleikaeinkunn TM BBB með stöðugum horfum. Matseinkunn TM er einu stigi lægri en S&P hefur veitt langtímaskuldbindingum íslenska ríkisins. TM hefur frá árinu 2007 verið með styrkleikamat frá S&P, eitt íslenskra tryggingafélaga. Matið veitir TM tækifæri til að sækja vátryggingaviðskipti á erlenda markaði og er því mikilvægur liður í að viðhalda vaxtarmöguleikum félagsins.

Kynningarfundur kl. 15:30 í dag.

TM býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi og á árinu 2015 þann 12. febrúar kl. 15:30. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24. 4. hæð. Þar kynnir Sigurður Viðarsson forstjóri uppgjörið og svarar spurningum.

Ársreikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar. Fylgjast má með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/984839949

Aðalfundur 17. mars 2016.

Aðalfundur TM árið 2016 verður haldinn þann 17. mars næstkomandi kl. 16:00 á Hilton Hótel Nordica sal I.

 

Fjárhagsdagatal 2016

1. ársfjórðungur: 4. maí 2016
2. ársfjórðungur: 24. ágúst 2016
3. ársfjórðungur: 27. október 2016
4. ársfjórðungur: 23. febrúar 2017

 

Nánari upplýsingar.

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM

s: 515-2609

sigurður@tm.is


Frettatilkynning TM 4F 2015.pdf
Tryggingamistoin hf. Arsreikningur samstu 2015.pdf