Icelandic
Birt: 2016-02-08 09:56:13 CET
TM hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Í 5. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 2.333.342 eigin hluti fyrir 50,8 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
2.2.2016 14:47 611.114 21,90 13.383.397 27.311.951
3.2.2016 09:47 500.000 21,75 10.875.000 27.811.951
4.2.2016 10:32 611.114 21,75 13.291.730 28.423.065
5.2.2016 11:15 611.114 21,70 13.261.174 29.034.179
Samtals   2.333.342   50.811.300  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. febrúar 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.

TM hefur nú keypt samtals 2.333.342 hluti í félaginu sem samsvarar 15,6% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 50,8 milljónum króna. TM á nú samtals 3,9% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins þann 17. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is