Icelandic
Birt: 2016-02-05 01:01:23 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

REITIR: Útboð á skuldabréfum 10. febrúar

Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 10. febrúar næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum REITIR151244 og REITIR151124 sem báðir eru verðtryggðir með jöfnum greiðslum og veðtryggðir með fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.

Fjárfestingabankasvið Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu. Heildarstærð útboðsins getur verið allt að 6,2 milljarðar kr. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsingu, drög að lokaskilmálum og önnur skjöl er varða útgáfurnar eru birt á vefsíðu félagsins reitir.is/fjarfestar.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.