Icelandic
Birt: 2016-02-03 17:33:35 CET
TM hf.
Fjárhagsdagatal

Uppgjör Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) á fjórða ársfjórðungi 2015 birt 12. febrúar 2016 – kynningarfundur kl. 15:30

TM birtir árshlutauppgjör fyrir fjórða ársfjórðung 2015 fyrir opnun markaða föstudaginn 12. febrúar næst komandi.

TM býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi kl. 15:30 sama dag. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24. 4. hæð.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Mögulegt er að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/984839949