English Icelandic
Birt: 2016-02-04 17:45:06 CET
Icelandair Group hf.
Fjárhagsdagatal

Birting uppgjörs 4. ársfjórðungs 2015

Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung ársins 2015, mánudaginn 8. febrúar 2016. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn þriðjudaginn 9. febrúar 2016 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum. Kynningin hefst kl. 8:30 og verður í Víkingasal 3.  Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-2015/