Icelandic
Birt: 2016-01-22 11:36:53 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Reitir selja Aðalstræti 16

Ákveðið hefur verið að ganga til samninga við Íslandshótel hf. um kaup Íslandshótela á Aðalstræti 16 í Reykjavík, sem Íslandshótel hafa leigt af félaginu undir rekstur Hótel Reykjavík Centrum. Salan er gerð á grundvelli kaupréttarákvæðis í leigusamningi. Söluverð fasteignarinnar er um 2,5 milljarðar kr. og greiðist með reiðufé. Við söluna mun áætlaður rekstrarhagnaður Reita lækka um 175 milljónir kr. á ársgrundvelli.

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320 og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416.