Icelandic
Birt: 2016-01-04 17:24:42 CET
TM hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Í 53. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.278.606 eigin hluti fyrir 30,2 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
29.12.2015 09:38 11.250 23,65 266.063 24.664.231
29.12.2015 10:05 5.000 23,65 118.250 24.669.231
29.12.2015 13:14 67.500 23,65 1.596.375 24.736.731
29.12.2015 15:19 39.000 23,65 922.350 24.775.731
29.12.2015 15:24 516.553 23,65 12.216.478 25.292.284
30.12.2015 09:31 639.303 23,60 15.087.551 25.931.587
Samtals   1.278.606   30.207.067  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.

TM hefur nú keypt samtals 25.931.587 hluti í félaginu sem samsvarar 83,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 581,8 milljónum króna. TM á nú samtals 3,5% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is