Icelandic
Birt: 2015-12-21 10:25:28 CET
TM hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Í 51. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 945.063 eigin hluti fyrir 22,1 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
14.12.2015 10:04 5.000 23,40 117.000 23.295.234
14.12.2015 10:52 150.000 23,40 3.510.000 23.445.234
14.12.2015 11:02 50.000 23,40 1.170.000 23.495.234
14.12.2015 14:33 23.390 23,40 547.326 23.518.624
16.12.2015 11:01 109.560 23,40 2.563.704 23.628.184
16.12.2015 14:58 529.743 23,40 12.395.986 24.157.927
18.12.2015 13:00 2.500 23,65 59.125 24.160.427
18.12.2015 15:10 42.500 23,65 1.005.125 24.202.927
18.12.2015 15:21 32.370 23,65 765.551 24.235.297
Samtals   945.063   22.133.817  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.

TM hefur nú keypt samtals 24.235.297 hluti í félaginu sem samsvarar 78,2% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 541,7 milljónum króna. TM á nú samtals 3,3% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is